is Íslenska en English

Safn námsritgerða
og rannsóknarita



Nýtt í Skemmunni


Túlkun staðlaðra samningsskilmála við lánveitingar, einkum þegar lántaki er neytandi með áherslu á upplýsingaskyldu og íþyngjandi ákvæði lánveitanda
Höfundur
Júlíus Aron Júlíusson 2002-


Í nútíma viðskiptalífi hefur orðið veruleg aukning á notkun staðlaðra samninga. Aukninguna má rekja til hraðari þróunar í viðskiptalífi þar sem að miklar kröfur eru gerðar varðandi skilvirkni og hraða við samningsgerð. Staðlaðir skilmálar af þessu tagi geta haft í för með sér hagræði þar sem miki... (2.918 stafir til viðbótar)


Fjármögnun hryðjuverka. Greining á 100. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með hliðsjón af hryðjuverkahugtaki 100. gr. a. hgl.
Höfundur
Máni Geir Th. Einarsson 1998-


Ísland er aðili fjölmörgum alþjóðasamningum sem hafa það markmið að sporna við hryðjuverkum og fjármögnun þeirra. Þrátt fyrir að aldrei hafi verið framin hryðjuverk á Íslandi, né nokkur dæmdur í íslenskum dómstólum fyrir að fjármagna hryðjuverkastarfsemi, hefur Ísland háttað sinni löggjöf þannig ... (953 stafir til viðbótar)


Veiðifélög: Skylduaðild að veiðifélögum í ljósi 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar
Höfundur
Njörður Bruun 2001-


Rétt eiga menn á að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þar með talin stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess. Svo hljóðar 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem mælir fyrir um félagafrelsi manna. Í 2. mgr. 74. gr. má finna systurre... (2.523 stafir til viðbótar)


Fjölskyldur barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi: Fjölskyldugerðir og -mynstur
Höfundur
Birta Rut Hauksdóttir 1999-


Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum er vandamál á heimsmælikvarða. Börnum hefur lengi verið kennt að tala ekki við ókunnuga en þó verða börn oftast fyrir kynferðisofbeldi af einhverjum nákomum. Fjölskyldur á norðurlöndunum hafa orðið flóknari með árunum og kynferðisofbeldi gegn börnum aukist. Markm... (1.222 stafir til viðbótar)


Áföll kvenna á flótta. Aðkoma félagsráðgjafa að því að veita kvenmiðaða neyðaraðstoð við móttöku flóttafólks
Höfundur
Fönn Hallsdóttir 1999-


Í mannkynssögunni hafa aldrei verið fleiri einstaklingar á flótta í heiminum en nú. Stríðsástand, náttúruhamfarir og pólitískar ógnir valda því að sífellt fleira fólk leggur á flótta frá heimasvæðum sínum. Konur og stúlkur á flótta lifa við þá stanslausu ógn að verða fyrir kynbundnu ofbeldi, yfir... (1.168 stafir til viðbótar)