Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/230
Markmið ritgerðarinnar er að koma auga á mikilvægi þess að samstilla betur leik- og grunnskóla landsins og skoða hvað valdi því að samfella í námi barna á mótum leik- og grunnskóla sé ekki nægjanleg og hvað sé til ráða.
Í nokkur ár hefur mikið verið rætt og ritað, hve samvinna og góð tengsl milli skólanna sé þýðingarmikil en þó hefur ekki náðst að samstilla skólana svo viðunandi sé.
Í ritgerðinni er fjallað um nokkra þætti sem gætu haft áhrif þar á. Þá staðreynd að e.t.v. ríkir ekki sameiginleg sýn og mat á þroska og færni barna á mótum leik- og grunnskóla hjá kennurum á báðum skólastigum svo og ólíkar kennsluaðferðir og áherslur sem í skólunum tíðkast. Einnig er velt upp hvort fyrirkomulag kennaramenntunar á Íslandi stuðli að ólíkum viðhorfum og væntingum kennara til barna á mótum leik- og grunnskóla.
Álykta má að erfitt geti reynst að samstilla skólana betur hvað kennsluaðferðir og markmið varðar áður en samþætt sýn kennara á börn sem og fagleg umfjöllun og samræming á hugtökum þessara tveggja fagstétta verði að veruleika þannig að skólarnir geti farið að vinna saman til framtíðar.
Ritgerðin gagnast öllum áhugasömum er láta sig varða bætt skólastarf á leik- og grunnskólastigi og skilja mikilvægi slíkrar samvinnu fyrir nemendur og skólakerfið í heild.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 287.13 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |