is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1828

Titill: 
  • Regnboginn á óteljandi liti : börn og ljóðagerð,hagnýtar upplýsingar-heild
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ljós hefur komið að börn velja að öllu jöfnu hefðbundin ljóð með sterku rími og hrynjandi. Einnig sýna rannsóknir fram á að börn kjósa helst stutt og hnitmiðuð ljóð sem gott er að tengja við nútímann. Þrátt fyrir þessa uppgötvun er börnum að öllu jöfnu tamara að yrkja án ríms og án sérstakra formerkja. Kennarinn gegnir veigamiklu hlutverki í ljóðaskrifum barna þar sem áhugi hans og virkni getur stuðlað að auknum áhuga í barnahópnum. Einnig er það í verkahring kennarans að hvetja ung ljóðskáld til dáða og kveikja hjá þeim löngun til að semja eigin ljóð.
    En hvað eru ljóð? Ljóð færa hljóð og tilfinningar í orð og koma slíku skikki á þau að bæði skáldið og lesandinn fái nýja sýn á lífið. Helstu einkenni ljóðformsins er að öllu jöfnu fremur knöpp, afmörkuð heild, oft með einkennum bundins máls, svosem ríms þó það sé ekki algilt. Texti ljóðanna einkennist af sérstökum hugblæ og tilfinningum sem settar eru upp á myndrænan hátt með lýsandi orðum.

Athugasemdir: 
  • Leikskólabraut
Samþykkt: 
  • 1.9.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1828


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - Heimildir.pdf426.9 kBOpinnHeildartexti PDFSkoða/Opna
Regnboginn_ljodabokarhandrit.pdf305.8 kBOpinnLjóðabókarhandrit PDFSkoða/Opna
Regnboginn_forsida.pdf56.45 kBOpinnForsíða PDFSkoða/Opna