Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5712
Verkefni þetta var unnið í samstarfi við fyrirtækið Vífilfell hf. og var markmið þess að kanna áhrif aukinna framstillinga á skyndikaupahegðun og sölu á Coca-Cola flöskum í 0,5L plastumbúðum í goskæli við afgreiðslukassa matvöruverslunar. Tilgangur Vífilfells með samstarfinu var að fá hlutlausa mælingu á áhrifamætti uppstillingar flasknanna við afgreiðslukassa verslana.
Framkvæmd var tilraunarannsókn á vettvangi í verslun Hagkaupa á Akureyri tímabilið 11.-26. mars árið 2010. Vettvangstilraun var valin vegna hversu vel slíkar tilraunir endurspegla raunverulegt umhverfi neytenda á markaði. Staðsettur var goskælir á vettvangi við einn af afgreiðslukössum verslunarinnar. Sala úr kæli við afgreiðslukassa var talin daglega á fyrrgreindu tímabili. Í lok tilraunar var sölutölum goskælis safnað saman og þær bornar saman við heildarsölutölur samanburðartímabila.
Niðurstöður rannsóknar benda til þess að goskælir við afgreiðslukassa hafi haft áhrif á heildarsölu í verslun Hagkaupa á Akureyri. Talsverða aukningu mátti greina á sölu 0,5L Coca-Cola á milli áranna 2009-2010 á tímabilinu 11.-26. mars. Renna þessar niðurstöður stoðum undir hugmyndir Vífilfells um að slíkir goskælar stuðli að aukinni sölu í verslunum. Niðurstöður rannsóknarinnar geta reynst mikilvægar fyrir Vífilfell í áframhaldandi vinnu við að koma slíkum kælum inn í matvöruverslanir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skyndikaup og áhrif þeirra á sölu Coca-Cola í matvöruverslunum-heild.pdf | 750.46 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna | |
Skyndikaup og áhrif þeirra á sölu Coca-Cola í matvöruverslunum-efnisyfirlit.pdf | 133.04 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Skyndikaup og áhrif þeirra á sölu Coca-Cola í matvöruverslunum-heimildaskra.pdf | 51.27 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |