Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1266
Á Grenivík, litlu sjávarþorpi við austanverðar Eyjafjörð er leikskóli sem ber nafnið
Krummafótur og var tekinn í notkun árið 2000. Þessi ritgerð fjallar um hann og
hvernig leikskólamálum var háttað á Grenivík fyrir hans daga.
Fyrst er þó rakið í stuttu máli hvernig uppeldisstarfi var háttað á Íslandi og sagt frá
því hvernig leikskólastarf þróaðist fyrir tilstilli Barnavinafélagsins Sumargjafar í
Reykjavík og Kvenfélagsins Hlífar á Akureyri.
Sagt er frá sögu Grenivíkur og fyrstu tilburðum fólks þar við að koma upp leikskóla
þegar atvinnuhættir tóku að breytast á seinni hluta síðust aldar og höfn kom á
Grenivík og frystihús í framhaldi af því. Konur í Kvenfélaginu Hlín á Grenivík eiga
heiðurinn af því að stofnaður var leikskóli. Þær fóru á fund hreppsnefndar og þegar
hreppsnefndin tók við sér fóru hjólin að snúast. Leikskólinn var fyrst í gömlu aflögðu
verslunarhúsi KEA. Það átti að vera bráðabrigðalausn, en þar var hann í 17 ár.
Hér segir í stórum dráttum frá starfi og starfsmönnum Krakkabúðar, eins og
leikskólinn hét í gömlu búðinni, og hvernig nýir tímar runnu upp þegar loksins var
byggður nýr leikskóli Leikskólinn Krummafótur. Síðasti hluti ritgerðarinnar fjallar um
innra starf hans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
daufur.pdf | 1.92 MB | Takmarkaður | Daufur - heild | ||
daufur_e.pdf | 110.81 kB | Opinn | Daufur - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
daufur_h.pdf | 131.03 kB | Opinn | Daufur - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
daufur_u.pdf | 68.31 kB | Opinn | Daufur - útdráttur | Skoða/Opna |