is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8673

Titill: 
  • Starfsmannasamtöl og mat á frammistöðu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Skýrslan er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Lagt var upp með eftirfarandi rannsóknarspurningar;
    • Hver er tilgangurinn með því að nota starfsmannasamtöl og frammistöðumat?
    • Hvert er viðhorf stjórnenda og starfsmanna Vífilfells til starfsmannasamtala og frammistöðumats?
    Fjallað er fræðilega um frammistöðumat og starfsmannasamtöl auk þess sem kynnt eru helstu matskerfi sem notuð eru við frammistöðumat innan fyrirtækja. Skoðað var viðhorf starfsmanna og stjórnenda til starfsmannasamtala en einnig var undirbúningur stjórnenda kannaður. Til þess að komast að niðurstöðu voru bæði notaðar eigindlegar og megindlegar aðferðir. Eigindlegra gagna var aflað með því að taka viðtal við starfsmannastjóra Vífilfells. Megindlega gögnin voru fengin með viðhorfskönnun sem lögð var fyrir starfsmenn Vífilfells.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru nokkuð áhugaverðar þar sem stjórnendur virðast ekki sinna starfsmannasamtölum eins og best væri á kosið. Þar má nefna tvo meginþætti sem betur mættu fara en þeir eru að starfsmönnum finnst viðhorf stjórnenda ekki nægilega gott ásamt því að stjórnendur eru í mörgum tilfellum að ræða um launamál starfsmannasamtölum. Samkvæmt starfsmannastjóra Vífilfells er það yfirlýst markmið Vífilfells að vera með sérstök launaviðtöl en því er augljóslega ekki fylgt eftir. Þó svo að stjórnendur standi sig eins vel og vonast var eftir eru starfsmenn almennt ánægðir með starfsmannasamtölin.
    Lykilorð:
    Frammistöðustjórnun Frammistöðumat
    Starfsmannasamtöl Frammistöðumatskerfi
    Vífilfell

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 23.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8673


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Starfsmannasamtöl og mat á frammistöðu.pdf705.44 kBLokaðurHeildartextiPDF