is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/43829

Titill: 
  • Bíbí í Berlín, Brúðufjölskylda - efnisheimur og túlkun
Námsstig: 
  • Meistara
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Bíbí í Berlín skildi eftir sig umfangsmikið brúðusafn (yfir 100 brúður) sem nú er í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Viðfangsefni þeirrar rannsóknar sem hér er byggt á felst í skráningu safnins, álitamálum því tengdu og uppsetningu sýningar um Bíbí og tilveru hennar. Dúkkusöfnun fólks er ekki óalgeng og á sér mismunandi hliðar og uppruna. Bíbí dreymdi um að eignast eiginmann og börn – fjölskyldu. Í ævisögu sinni skrifar hún um drauma sem hefðu getað orðið. Draumarnir fengu að einhverju leyti útrás í fatasaum á dúkkurnar og garðyrkju. Þessa iðju stundaði hún ekki síst á meðan hún dvaldi á elliheimili sem ung manneskja og fann með því lífi sínu og draumum farveg.
    Sjálfsævisaga Bíbíar er öflugt verkfæri sem getur gagnast til að fræða og jafnvel breyta viðhorfum. Samtal við fólk með fötlun í upphafi sýningargerðar er því mikilvægt þar sem þarf að taka afstöðu, mið af viðfangsefninu og íhuga sanngildi. Leiðir að sýningarhandriti og efnisheimi Bíbíar eru margar og í þessari ritgerð verður fjallað um þá þætti sem leggja grunn að því handriti.

  • Útdráttur er á ensku

    Bíbí in Berlin left behind an extensive doll collection of over 100 dolls, now preserved by the National Museum of Iceland. Registration and exhibition of the doll collection forms the foundation of this research. People's doll collecting is not uncommon and differs in aspects and origins. Bíbí dreamed of having a husband and children - a family. In her autobiography she writes about dreams that might have been and these dreams were to some degree expressed in making clothes for her dolls and gardening. She practiced these crafts not least during her stay in the retirement home as a young person and thus found an output for her life and dreams.
    Bíbí's autobiography is a powerful tool that can be used to educate and alter attitudes. Thus, the importance of cooperation of people with disabilities and relevant groups when script making for intended exhibition as one must take a stand, include the subject, and strive for a truthful narrative. This essay will discuss the registration and consequent research of Bíbí’s dolls, doll collecting in a larger context and ways to envisage an exhibition about Bíbí, her material surroundings and her collection.

Samþykkt: 
  • 4.5.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43829


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
yfirlýsing-skemma.pdf7.95 MBLokaðurYfirlýsingPDF
MA_lokaskjal_GDG.pdf74.12 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna