Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8831
Í október síðast liðnum voru 30 ár liðin frá hinum heimsfræga kvennafrídegi sem haldinn var hér á landi á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október kvennaárið 1975. Fundarins var minnst með glæsilegum baráttufundi í miðbæ Reykjavíkur nú í haust. Á þessu ári hefði baráttukonan Vilborg Harðardóttir blaðamaður og rauðsokka orðið 70 ára hefði henni enst líf og heilsa. Þetta tvennt er tengt saman í bók Hildar Hákonardóttur Ég þori, get og vil sem kom út dagana í kringum 24. október enda var Vilborg Harðardóttir einn frumkvöðlanna að kvennafrídeginum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
c.2005.1.1.4.pdf | 19.86 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |