is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7608

Titill: 
  • Verslun með matvæli á Internetinu : er markaður á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu?
  • Titill er á ensku The Online Grocery Market : Is there a market in Iceland for online grocery shopping?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Almenn netverslun hefur verið í mikilli þróun á síðasta áratug og virðast nú engin takmörk vera fyrir því sem hægt er að versla á Internetinu. Á undanförnum árum hefur verslun með matvæli á Internetinu náð gríðarlegum vinsældum erlendis, sér í lagi á Bretlandi og í Bandaríkjunum. Norðurlandaþjóðirnar hafa einnig fetað inn á þennan markað en netverslanir þar í landi hafa átt erfiðara með að ná sömu vinsældum og þekkist annars staðar.
    Á Íslandi er nú engin starfandi matvörunetverslun en Hagkaup setti slíka verslun á laggirnar upp úr síðustu aldamótum sem lifði stutt vegna of hás rekstrarkostnaðar sem skilaði sér í of
    háu vöruverði. Í verkefninu er rannsakað hvort markaður sé á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu. Við vinnslu verkefnisins var litið er til erlendra kannana og skýrslna sem fjalla um viðfangsefnið. Að gagnasöfnun lokinni var aflað frumheimilda með markaðsrannsókn sem lögð var fyrir á Internetinu í formi spurningalista. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íslenskir neytendur séu tilbúnir til að breyta kauphegðun sinni þegar kemur að því að versla í matinn og hvort tækifæri sé fyrir fyrirtæki að ráðast inn á þennan markað.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð
Samþykkt: 
  • 24.2.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7608


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Birna - Ritgerð - LOKAÚTGÁFA.pdf1.43 MBLokaðurHeildartextiPDF