is Íslenska en English

Hönnunar- og arkitektúrdeild / Department of Design and Architecture

Listaháskóli Íslands >

Lýsing

Útskriftarverkefni (BA) nemenda í hönnunar- og arkitektúrdeild mótast af fagsviði nemenda. Markmiðið er að nemendur sýni fram á þekkingu og hæfni til að skila af sér heilsteyptu verki þar sem tekist á við mótun hugmyndar til framsetningar á tillögu. Útskriftarverkefni í BA námi er metið til 14 ECTS eininga.

Í Greinagerð með útskriftarverkefni (BA) fjalla nemendur um eigið verk í hönnunarlegu, menningarlegu, samfélagslegu og umhverfislegu samhengi og gera þá rannsóknar- og heimildavinnu sem liggur að baki útskriftarverkefninu sýnilega. Greinagerð með útskriftarverkefni er metin til 2 ECTS eininga.

Lokaritgerðir (BA) eru fræðilegar ritgerðir byggðar á heimildargrunni og túlkun nemenda á afmörkuðum viðfangsefnum er varða hönnun eða arkitektúr. Áhersla er lögð á að nemendur séu sjálfstæðir í hugsun, sýni frumvæði og séu gagnrýnir í afstöðu sinni á það viðfangsefni sem þeir hafa valið sér. Ritgerðin þarf að uppfylla fræðilegar kröfur um tilvitnanir, neðanmálsgreinar og heimildaskrá. Ritgerðin er metin til 6 ECTS eininga.

MA verkefni er metið til 30 ECTS og skiptist í hönnunarverk, rannsóknarritgerð og greinagerð. Hönnunarverkið er 20 ECTS einingar og byggir á markvissri rannsóknarvinnu þar sem niðurstöðum rannsóknarinnar er miðlað í formi hönnunarverks. Rannsóknarritgerðin er undanfari hönnunarverksins og er metin til 6 ECTS. Um er að ræða fræðilega ritgerð, byggð á traustum heimildagrunni og túlkun nemenda á afmörkuðum viðfangsefnum er varða hönnun. Greinagerð um MA verkefni er metin til 4 ECTS. Í henni fjalla nemendur um eigið verk í hönnunarlegu, menningarlegu, samfélagslegu og umhverfislegu samhengi og gera þá rannsóknar- og heimildavinnu sem liggur að baki hönnunarverkinu sýnilega.

Skoða/leita

+ Hjálp
Finna verk

Söfn

+ Hjálp