Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9338
Í ritgerð þessari verður fjallað um samstarf heimilis og leikskóla, hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á þetta samstarf, á starfið í leikskólanum og á okkur sjálf. Afhverju samstarf leikskóla við heimili er svona mikilvægt, hvernig leikskólinn getur stuðlað að betra samstarfi þarna á milli með skráningum og hver ávinningurinn af skráningum er fyrir barnið, leikskólakennarana og heimilið. Í ritgerðinni verður einnig fjallað um hvenær samstarf heimilis og leikskóla hefst og hvernig.
Tilgangurinn með ritgerðinni er að vekja athygli á skráningum í leikskólum, afhverju þær eru gagnlegar, fyrir hvern og hvernig er hægt að nýta þær til að styrkja foreldrasamstarf og gera starfið í leikskólanum sýnilegra út á við.
Með því að hafa skráningar í leikskólum sýnilegar, er leikskólinn að opna sig meira fyrir foreldrum og gera þeim þannig kleift að taka meiri þátt í því, með barninu sínu, sem er að gerast í leikskólanum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skráningar í leikskólastarfi_bep2_.pdf | 507.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |