Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/834
Í þessari skýrslu er gert grein fyrir virkri og hlutlausri eignastýringu.
Eignastýring er ein aðferð við að ávaxta fjármuni og geta einstaklingar bæði
sinnt því sjálfir en einnig látið fjárfestingafyrirtæki sjá algerlega um
fjárfestingarnar. Tilgangurinn með eignasöfnum er aðallega sá að minnka
áhættu en fá sömu vænta ávöxtun út úr fjárfestingunni. Við eignastýringu er
hægt að fara tvær leiðir, hlutlausu leiðina og virku leiðina. Þegar farið er eftir
hlutlausu leiðinni er fjárfest í vísitölusöfnum en í virku leiðinni eru til nokkrar
mismunandi aðferðir sem byggjast allar á mismunandi hugsjónum. Þegar
valið er á milli þess hvort fara eigi hlutlausu eða virku leiðina skiptir
skilvirkni markaða miklu máli. En grunnforsenda virkrar eignastýringar er að
markaðir séu ekki fullkomlega skilvirkri. Á mörkuðum sem eru með mikla
skilvirkni ætti hlutlausa leiðin að henta betur en sú virka á mörkuðum þar sem
skilvirkni er lítil eða meðal. Einnig þarf að hafa í huga hvaða áhættu fjárfestar
eru tilbúnir að taka en áhættuþol þeirra er mismunandi og þarf að taka mið af
því þegar verið er að velja í eignasöfn. Það er hægt að gera með því að hafa
mismunandi hlutföll áhættusamra eigna og þeirra sem eru áhættuminni.
Þegar borinn er saman árangur hlutlausrar og virkrar stýringar gefur sú
hlutlausa betri ávöxtun samkvæmt fjármálafræðnum. Í þessari skýrslu var
gerður samanburður á aðferðunum sem leiddi ekki sömu niðurstöðu í ljós og
fjármálafræðin. Tölfræðipróf gáfu þá niðurstöðu að ekki var hægt að hafna
þeirri tilgátu að ávöxtun safnanna væri jöfn.
Lykilorð: Virk eignastýring, hlutlaus eignastýring, skilvirkni markaða,
eignasafn, áhætta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 20.27 kB | Opinn | Eignastýring - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Eignastýring einstaklinga - virk og hlutlaus eignastýring.pdf | 574.64 kB | Lokaður | Eignastýring - heild | ||
Heimildaskrá.pdf | 29.8 kB | Takmarkaður | Eignastýring - heimildaskrá | ||
Útdráttur.pdf | 13.08 kB | Opinn | Eignastýring - útdráttur | Skoða/Opna |