Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9727
Þessi greinargerð ásamt hugmyndabók er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2011. Það hefur að geyma umfjöllun um ull, þæfingu ullar og sögur af ullarþæfingu. Einnig er fjallað um útikennslu og hvernig nýta má náttúruna til hugmyndavinnu verkefna í grunnskólum. Ullin og náttúran eru nýttar saman í verkefnavinnu. Nemendur nýta náttúruna til þæfingar, þeir þæfa ull utan um steina og skeljar. Útikennsla og listgreinakennsla eiga að víkka sjóndeildarhring nemenda og þar reynir á fjölgreindarkenningu Howards Gardners sem hefur haft mikil áhrif á kennslu í skólum og er henni gerði nokkur skil.
Hugmyndabókin inniheldur hugmyndavinnu að verkefnum og útfærslur þeirra sem öll eru unnin úr íslenskri ullarkembu og efniviði úr íslenskri náttúru eins og steinum, skeljum, kuðungum, könglum og trjágreinum. Hún inniheldur einnig kynningu á áhöldum sem þarf við þæfingu ásamt aðferðum og vinnulýsingum á verkefnum sem notaðar eru við þæfinguna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsíða á greinargerð.pdf | 30.8 kB | Lokaður | Titilsíða | ||
Lokaverkefni - greinargerð.pdf | 210.65 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Forsíða á hugmyndabók.pdf | 179.47 kB | Lokaður | Titilsíða | ||
lokaverkefni -hugmyndabók.pdf | 2.84 MB | Lokaður | Heildartexti |