is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1333

Titill: 
  • Lok, lok á læsi : lesblinda og athugun á áhrifum Davis-aðferðarinnar í kennslustofunni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á
    Akureyri. Tilgangurinn var að leita fræðilegrar vitneskju um lesblindu ásamt því að
    kynnast sérstaklega kenningu og aðferð Ronald D. Davis. Sagt verður frá athugun sem
    höfundar gerðu á áhrifum Davis-aðferðarinnar í kennslustofunni.
    Lesblinda hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár og vakið bæði almenning
    og kennara til umhugsunar um þau áhrif sem hún kann að hafa á einstaklinga. Margar
    hugmyndir um orsakir lesblindu hafa litið dagsins ljós en það hefur reynst
    vísindamönnum erfitt að koma sér saman um skilgreiningu á henni og hefur það enn
    ekki tekist. Sumir telja orsökina vera skemmd eða afbrigðilega starfsemi í heila á
    meðan aðrir, þ.m.t. Davis, halda því fram að lesblindir hugsi öðruvísi, eða í myndum.
    Hann kýs að líta á slíka hugsun sem hæfileika sem um leið veldur lesblindum
    erfiðleikum við að tileinka sér lestur og skrift. Hugmyndafræði Davis er frábrugðin
    því sem áður hefur verið sett fram og vakti það áhuga höfunda. Af þeirri ástæðu þótti
    áhugavert að líta nánar á hana og verða henni gerð ítarleg skil í verkefninu. Einnig
    verður fjallað um kenningar nokkurra annarra fræðimanna.
    Greint verður frá niðurstöðum athugunarinnar sem gerð var meðal kennara sem
    hafa fengið þjálfun í Davis-aðferðinni og beitt henni í kennslustofunni. Í ljós kom að
    kennarar eru jákvæðir í garð aðferðarinnar, þeir telja hana hafa jákvæð áhrif á
    einbeitingu nemenda, aga í kennslustofunni og námsárangur. Þar sem úrtakið var lítið
    og aðferðin er svo ný af nálinni hérlendis ber þó að taka niðurstöður athugunarinnar
    með ákveðnum fyrirvara og líta frekar á þær sem vísbendingar sem gefa tilefni til
    frekari rannsókna.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1333


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Katrín og Kristjana_e.pdf122.05 kBOpinnLoklok - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Katrín og Kristjana_h.pdf128.61 kBOpinnLoklok - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Katrín og Kristjana_heild.pdf1.53 MBTakmarkaðurLoklok - heildPDF
lok-fs.pdf1.01 MBTakmarkaðurLoklok - fylgiskjölPDF
lok-u.pdf122.04 kBOpinnLoklok - útdrátturPDFSkoða/Opna