is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9675

Titill: 
  • Kennsla heyrnarskerta barna : hvað þarf til að hún verði jöfn kennslu heyrandi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvað það er sem þarf til að kennsla heyrnarskertra barna sé til jafns við kennslu heyrandi jafnaldra þeirra. Byrjað er á að fjalla um hugtökin heyrnarlaus og heyrnarskertur og hvaða þýðingu þau hafa. Þá er fjallað um máltöku þessara barna og tvítyngishugtakið, hvað það þýðir og hvernig þessi börn tilheyra þeim hópi á sinn eigin hátt. Skólasaga heyrnarlausra og heyrnarskertra var skoðuð lítillega til að varpa ljósi á hvernig menntun þessir nemendur hlutu hér á landi á árum áður. Í lokin er rætt um börn sem hafa gengist undir kuðungsígræðslu, kennslu þeirra og hvaða sérstöðu þau hafa. Niðurstaðan var sú að ef menntun heyrnarskertra barna ætti að verða jöfn heyrandi er nauðsynlegt að allir aðilar sem að henni koma séu í stakk búnir að takast á við það verkefni. Táknmálskennsla gegnir lykilhlutverki í menntun þessara nemenda og öflug notkun táknmáls er mikilvæg til að ná því markmiði að menntun þeirra verði jöfn menntun heyrandi barna.

Samþykkt: 
  • 30.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9675


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kennsla heyrnarskertra barna - Karólína Lárusdóttir.pdf473.58 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna