Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10044
Framtíðarhagsmunir Íslendinga á Norðurslóðum eru miklir, sökum þess hversu auðugt
svæðið er af náttúruauðlindum og vegna möguleika á auknum siglingum um svæðið í
kjölfar bráðnunar Norðurskautsíshellunnar. Samfara auknum umsvifum á svæðinu
skapast áhugaverð tækifæri til atvinnuuppbyggingar og fjárfestingar sem gætu haft
jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Samhliða þessum tækifærum má þó einnig greina
ákveðnar ógnir við íslenska hagsmuni. Í kjölfar aukinna umsvifa á svæðinu eykst hætta á
neikvæðum áhrifum á umhverfi svæðisins sem haft getur alvarleg áhrif á efnahagsþróun
Íslands enda eru þær greinar sem skapa gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið, sjávarútvegur
og ferðaþjónusta, mjög viðkvæmar fyrir mengun og umhverfisslysum. Afkoma þessara
atvinnugreina byggist að miklu leyti á ímynd Íslands sem óspillts og ómengaðs og
tengingar þess við hugmyndina um hreinleika ósnertrar náttúru norðurslóða. Ef alvarleg
mengunarslys eiga sér stað á norðurslóðum er því einnig hætta á að það geti haft alvarleg
áhrif á ímynd Íslands og skaðað þannig efnahagslega hagsmuni landsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð Guðmundur Magnússon.pdf | 1.11 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |