is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10073

Titill: 
  • Konur, karlar og forystusæti á framboðslistum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um eigindlega rannsókn sem framkvæmd var til að freista þess að svara þeirri spurningu hvers vegna konur sækjast í minna mæli en karlar eftir forystusætum á framboðslistum stjórnmálaflokkanna. Tekin voru viðtöl við sex núverandi og fyrrverandi þingkonur, úr Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki, sem sóst hafa eftir sæti mjög ofarlega á framboðslistum í tveimur kjördæmum. Í upphafi ritgerðarinnar er kynning á fræðilegum þáttum sem talin eru hafa áhrif á stjórnmálaþátttöku kvenna. Þá er farið stuttlega yfir þróun stjórnmálaþátttöku kvenna á Íslandi almennt og svo stöðu kvenna í tveimur íslenskum stjórnmálaflokkum; Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Því næst er rannsóknaraðferðin og framkvæmd rannsóknarinnar kynnt. Niðurstöður rannsóknarinnar eru því næst greindar í fjórum köflum. Að lokum eru niðurstöðurnar dregnar saman og svarið við rannsóknarspurningunni kynnt.

Samþykkt: 
  • 15.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10073


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Konur_karlar_og_forystusæti_a_frambodslistum.pdf510.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna