Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10090
Nú á síðastliðinni öld urðu miklar breytingar á því hvernig litið var á fíkniefnaneyslu. Neyslan var farin að valda vandamálum fyrir samfélagið í stærri stíl og sáu stjórnvöld sig knúin til að takast á við vandan með stefnumótun og löggjöf. Þessi ritgerð fjallar um nokkrar af þeim ólíku leiðum sem beitt er í Evrópu til að takast á við þau vandamál sem fylgja fíkniefnaneyslu. Fjallað verður um hamlandi stefnu Svía, frjálslynda stefnu Hollendinga og nýlega afglæpunar stefnu Portúgal. Auk þess verður greint frá því hvernig málum er háttað hér á landi. Fjallað verður um kosti og galla hverrar stefnu fyrir sig og hvernig þær komu til. Þessar ólíku stefnur verða bornar saman og lagt mat á árangur hverrar fyrir sig. Greint verður frá árangri refsistefnu og skaðaminnkandi aðgerðir ræddar, auk þess sem framtíð stefnumótunar í vímuefnamálum verður rædd.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA final2 leidrett.pdf | 646.91 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |