is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1020

Titill: 
  • Greining og stjórnun umhverfisþátta í skipasmíðaiðnaði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að greina helstu umhverfisþætti Slippstöðvarinnar og hvernig best er að stjórna þessum þáttum samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfi ISO 14001. Skýrt verður frá því hver ávinningurinn er fyrir fyrirtækin af því að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi hjá sér.
    Þeir eru margir umhverfisþættirnir hjá Slippstöðinni t.d. olía, málning, járn, vatn, orka, útblástur o.fl., greining þriggja þátta, olíu, málningu og járns, sýna, að umhverfisáhrif geta orðið slæm ef meðhöndlun er ekki rétt.
    Skipuleg umhverfisstjórnunarkerfi hjá fyrirtækjum gera það að verkum að skipulegar er unnið að úrbótum umhverfisþátta. Umhverfisstjórnunarkerfi þarf samt að virkja með reglulegri rýni, skipulegum úrbótum og samstarfi við alla innri og ytri hagsmunaaðila ásamt mörgum öðrum þáttum.
    Umhverfismál eru orðin viðamikil umræðuefni í heiminum öllum, farið er að vinna að umbótum á þáttum sem hafa slæm umhverfisáhrif með alþjóðasamningum.
    Innleiðing umhverfisstjórnunarkerfisins ISO 14001 gæti orðið Slippstöðinni ehf. til góða, samkeppni í skipasmíðaiðnaði er hörð og sú jákvæða umræða og skipulag sem fylgir vottun skv. ISO 14001 gæti leitt til: nýrra viðskiptavina, færri mengunarslysa, betra vinnuumhverfis, meira lánstrausta, lægri tryggingagjalda, aukinar vinnuumhverfisvitundar meðal starfsmanna og að jákvæðir drífandi starfsmenn löðuðust að fyrirtækinu svo eitthvað sé nefnt. Innihald þessa verkefnis ætti að auðvelda ákvörðun yfirstjórnar Slippstöðvarinnar um að taka upp hjá sér umhverfisstjórnunarkerfi.
    Lykilorð: Umhverfi, ISO 14001, Umhverfisstjórnunarkerfi, Umhverfisþættir, Lög og reglugerðir fyrir umhverfismál.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1020


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
skipasmidaidn.pdf494.39 kBTakmarkaðurGreining og stjórnun umhverfisþátta í skipasmíðaiðnaði - heildPDF
skipasmidaidn_e.pdf135.24 kBOpinnGreining og stjórnun umhverfisþátta í skipasmíðaiðnaði - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
skipasmidaidn_h.pdf103.71 kBOpinnGreining og stjórnun umhverfisþátta í skipasmíðaiðnaði - heimildaskráPDFSkoða/Opna
skipasmidaidn_u.pdf109.14 kBOpinnGreining og stjórnun umhverfisþátta í skipasmíðaiðnaði - útdrátturPDFSkoða/Opna