Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10246
Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.- prófs í grunnskólakennarafræðum við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins er að koma fram með nýjar hugmyndir að verkefnum í hönnun og smíði fyrir 7. bekk grunnskóla, með áherslu á blandaða tækni. Verkefnið sem skiptist í fræðilega greinagerð og verkefnasafn tekur mið af Aðalnámskrá grunnskóla.
Í fræðilegu greinagerðinni er fjallað um rætur hönnunar og smíði. Kynntar eru hugmyndir nokkurra kennismiða um nám og kennslu er tengjast hönnun og smíði. Upphaf kennslu hönnunar og smíða er rakin ásamt því hvernig námsgreinin hefur þróast í tengslum við samfélagsbreytingar. Komið er inn á áherslur okkar tíma í umhverfismennt og farið yfir stöðu greinarinnar varðandi þær kennslustundir sem henni er úthlutað og það námsefni sem til er. Að lokum er fjallað um hvernig nýta megi verkefnasafnið.
Verkefnasafnið hefur að geyma hugmyndir af verkefnum fyrir 7. bekk byggt á blandaðri tækni í hönnun og smíði. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um hvernig nýta megi verkefnasafnið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GreinaGerð_Loka.pdf | 657.97 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Verk_SAFN_LOKA.pdf | 1.06 MB | Opinn | Verkefnasafn | Skoða/Opna |