is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10451

Titill: 
  • Myndvöktun
  • Titill er á ensku Video Surveillance
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um þær reglur sem gilda í íslenskum rétti um myndvöktun á sviði persónuupplýsingaréttar, þ.e. rafræna vöktun með myndavélum, og álitaefni henni tengdri. Þau snerta oft mörg lagaákvæði í senn, sem gjarnan eru matskennd. Laga- og stjórnsýsluframkvæmd hér á landi er lýst og er áhersla lögð á að gera stjórnvaldsákvörðunum og úrskurðum Persónuverndar skil. Í upphafi ritgerðarinnar er vikið að löggjöf um persónuupplýsingar og vernd þeirra. Fjallað er í stuttu máli um alþjóðlegar reglur sem þýðingu hafa fyrir íslenskan rétt. Skýrt er frá persónuupplýsingalöggjöf í íslenskum rétti, þ.e. forsögu núgildandi löggjafar og gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 (pul.) og reglum byggðum á þeim. Því næst er gerð grein fyrir markmiði, efnislegu gildissviði og helstu hugtökum laganna og leitast við að draga fram það sem hefur gildi fyrir umfjöllunina. Þar á eftir er fjallað um 8. gr. pul. sem mælir fyrir um almennar heimildir fyrir vinnslu persónuupplýsinga og hin sérstöku skilyrði fyrir vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga í 9. gr. pul. Þá er sjónum beint að ákvæði 1. mgr. 4. gr. pul. um rafræna vöktun. Öll myndvöktun skal jafnframt uppfylla meginreglur 7. gr. persónuupplýsingalaga um gæði gagna og vinnslu og verður leitast við að varpa ljósi á beitingu þeirra í stjórnsýsluframkvæmd. Gerð er grein fyrir ákvæðum um fræðsluskyldu ábyrgðaraðila gagnvart hinum skráða í 20. og 21. gr. laganna og ákvæði 24. gr. pul. um viðvaranir um rafræna vöktun. Að lokum er vikið að upplýsingarétti hins skráða, skv. 18. gr. pul., og rétti til almennrar vitneskju um vinnslu persónuupplýsinga, skv. 16. gr. pul.

Samþykkt: 
  • 5.1.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10451


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Katrín Þórðardóttir_lokaritgerð.pdf868.55 kBLokaðurMeginmálPDF
Forsíða_lokaritgerd.pdf208.67 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna