Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10476
Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er sérfræðiþjónusta sveitarfélaganna við grunnskóla á Austur- og Vesturlandi. Markmiðið er að skoða hvaða þjónusta er í boði fyrir grunnskólabörn sem þurfa á sérfræðiþjónustu að halda, hvernig þjónustunni er háttað og hverjir sinna henni. Tengslakenning Bowlbys verður notuð til að skýra hluta þeirra vanda sem grunnskólabörn geta þurft að glíma við. Gert verður stuttlega grein fyrir öðrum erfiðleikum sem geta haft áhrif á skólagöngu barna. Þá verður fjallað um sérfræðiþjónustu sveitarfélaganna við grunnskóla og sérfræðiþjónustur á Austur- og Vesturlandi bornar saman. Einnig var fjöldi fagfólks innan grunnskólanna skoðaður til að fá betri heildarmynd af þeirri þjónustu sem stendur nemendunum til boða. Í lok ritgerðarinnar verður svo fjallað um starf félagsráðgjafa í grunnskólum. Helstu niðurstöður voru þær að flest sveitarfélögin voru að veita svipaða þjónustu miðað við nemendafjölda. Misjafnt var hversu nákvæmar upplýsingar sérfræðiþjónustur sveitarfélaganna héldu um þjónustuna. Athyglisvert var að enginn félagsráðgjafi var skráður starfandi hvorki hjá sérfræðiþjónustunum né hjá grunnskólum sveitarfélaganna á Austur- og Vesturlandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-Sérfræðiþjónusta við grunnskóla-skemman.pdf | 889.57 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |