Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10552
Í eftirfarandi ritgerð er stefnumiðuð markaðsáætlun fyrir T.G.I. Friday‘s á Íslandi. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fræðileg umfjöllun um uppsetningu stefnumiðaðrar markaðsáætlunar, auk þess sem gerð er grein fyrir helstu ástæðum fyrir notkun hennar.
Í síðari hluta ritgerðarinnar er það umhverfi sem T.G.I. Friday‘s starfar í gerð tæmandi skil og í kjölfarið er gerð SVÓT-greining. Markmið fyrir árið 2012 eru byggð á greiningu umhverfisins og markaðsstefna skilgreind í kjölfarið, þar sem farið er ítarlega yfir samval söluráðanna. Aðgerðaráætlun er gerð fyrir árið 2012, en stóran hluta hennar er að finna í viðauka ritgerðarinnar. Í framhaldinu er áætlaður rekstrarreikningur settur fram fyrir árið 2012 og því næst kemur eftirlit og varaáætlun. Í viðauka er síðan að finna viðbótar upplýsingar sem nýtast við lestur ritgerðarinnar og framkvæmd markaðsáætlunarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð - Heild.pdf | 1.23 MB | Lokaður til...02.01.2030 | Heildartexti |