Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10593
Í þessari ritsmíð verður reynt að finna svar við þeirri spurningu hvort að Ísland eigi að hefja jarðeldsneytisvinnslu á Drekasvæðinu ef jarðeldsneyti fyndist þar í vinnanlegu magni. Litið verður í margar áttir og púlsinn tekinn á hinum ýmsu málefnum allt frá efnahagslegum og til mögulegra slysa sem og að áhrifum sem að loftslag jarðarinnar gæti orðið fyrir. Orkunotkun Íslands í gegnum árin verður skoðuð og hvaða áhrif mögulegur fundur á jarðeldsneyti myndi hafa á orkunotkun landsins í framtíðinni. Ísland er land sem er þekkt fyrir stórbrotna náttúru sem og að standa framarlega hvað náttúrvernd varðar. Er fýsilegt að þjóð með slíkt orðsporð fari að blanda sér í jarðeldsneytisgeirann? Við skulum nú líta betur á fyrrgreind atriði sem og fleiri sem eiga að gefa svar við hinna erfiðu spurningu. Á Ísland að fara að vinna jarðeldsneyti, finnist það í vinnanlegu magni?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lárus Helgi Ólafsson.pdf | 561.29 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Vil ekki að ritgerðin sé prentuð út nema haft sé samband við mig.