Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10744
Ritgerð þessi er 10 eininga lokaverkefni og hluti af Baccalaureus Scientiarum gráðu í Ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvernig ímynd íslenskrar náttúru hefur skapast og hvernig þessi þróun tengist ferðamennsku á Íslandi. Leitast verður svara við því hvort að ferðamennska hafi með einhverjum hætti áhrif á hugarfar til náttúru landsins. Ritgerðin skoðar sögu og þróun ferðamennsku á Íslandi með áherslu á hálendisferðamennsku. Fjallað verður um nytsemi þess að skoða sögulegar rætur hugmynda um náttúru og umhverfi sem notuð eru í orðræðu um hálendi Íslands og hvernig umhverfisvitund þróaðist hér. Skoðaðar verða hugmyndir um ímynd Íslands og náttúru landsins í ferðamennsku og hvernig þessar hugmyndir hafa orðið til.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
(Lokaverkefni B.Sc. Anna G. Sveinsdóttir).pdf | 317.37 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |