Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10764
Evrópuárið 2010 var tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Fjöldi verkefnastyrkja var veittur til baráttunnar og hlaut Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd styrk til að rannsaka félags- og efnahagslega stöðu pólskra barnafjölskyldna í Reykjavík. Samstarfsaðili að verkefninu er Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Helstu niðurstöður:
Meirihluti svarenda hafa iðn- eða starfsmenntun (55%). Menntun svarenda er ólík menntun reykvískra foreldra almennt, þar sem fleiri hafa lokið háskóla- eða framhaldsskólanámi en færri iðn- eða starfsnámi.
Meðalheimilistekjur pólskra barnafjölskyldna eru 417 þúsund krónur á mánuði.
Meirihluti þeirra fjölskyldna (58%) sem hafa minna en 300 þúsund í mánaðartekjur eru fjölskyldur einstæðra foreldra.
Pólskar barnafjölskyldur sem búsettar eru miðsvæðis í Reykjavík (352 þús.) og í Breiðholti (378 þús.) hafa lægri heimilistekjur en þær eru búsettar eru í Grafarvogi, Grafarholti, Norðlingaholti og Árbæ (460 þús.) og Kringlunni, Laugardal, Hlíðum, Fossvogi, Háaleiti og Skeifunni (475 þús.). Þeir þátttakendur sem tala íslensku vel hafa hærri heimilistekjur en þeir sem slakari kunnáttu hafa í íslensku.
Mánaðarlegar heimilistekjur pólskra barnafjölskyldna eru 238 þúsund krónum lægri en meðalheimilistekjur almennings í Reykjavík.
Heimilistekjur kvenkyns svarenda eru lægri en karlkyns svarenda þar sem þær eru frekar einstæðar en þeir.
Meirihluti þáttakenda hefur verið í vinnu síðustu þrjá mánuði (57%), 18% hefur hvorki verið í vinnu né námi, 10% í námi og 14% í vinnu og námi.
Karlar (87%) eru frekar í vinnu og/eða námi en konur (77%).
Hlutfall foreldra sem hvorki eru í vinnu né námi er hæst í Miðbæ, Austur- og Vesturbæ (21%).
Mikill meirihluti þátttakenda er í sambúð eða hjónabandi (86%) en einstæðir foreldrar eru 14% þátttakenda.
Um 60% þátttakenda eiga eitt barn en þriðjungur á tvö börn og eiga pólskir foreldrar færri börn að meðaltali en reykvískir foreldrar almennt.
Ríflega helmingur þátttakenda flutti til Íslands á árunum 2006 og 2007. Fjórðungur þeirra kvenna sem tóku þátt fluttust til Íslands 2008 eða síðar.
Hlutfallslega flestir þátttakendur (44%) segjast tala íslensku mjög eða frekar illa.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
polskar barnafjölskyldur i reykjavik lokaskyrsla.pdf | 910.4 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |