Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10780
Rannsóknin beinist að verkefnum, vinnuumhverfi og líðan starfsfólks í umönnun aldraðra á Íslandi samanborið við hin Norðurlöndin. Gagnasöfnun fór fram árið 2005 í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð en árið 2009 á Íslandi. Samræmdur spurningalisti var lagður fyrir í löndunum öllum og var úrtakið jafnstórt eða 1200 manns í hverju landi. Þannig náði rannsóknin til hlutfallslega stærri hóps starfsfólks á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Rannsóknin náði til starfsmanna sem höfðu aðra menntun en háskólamenntun. Svarhlutfall var frá 55% (Ísland) til 77% (Danmörk).
Niðurstöður sýna að starfsfólk í umönnun aldraðra á Íslandi hefur minni menntun, er að jafnaði yngra og með styttri starfsaldur en á hinum Norðurlöndunum. Verkefni íslensku starfsmannanna eru ekki jafn fjölbreytt og þeir sinna stjórnun í minna mæli en norrænir kollegar þeirra. Íslensku starfsmennirnir eru flestir í hlutastörfum, vinna í meira mæli á dagvinnutíma en kvöld- eða helgarvinnu, og þeir eru flestir ánægðir með vinnutíma sinn. Niðurstöðurnar sýna að hærra hlutfall eldra fólks á Íslandi býr á stofnunum. Þeir sem búa heima fá minni tíma í þjónustu og sú þjónusta er oftast veitt á dagvinnutíma. Þetta sýnir að þjónustan tekur að takmörkuðu leyti mið af þörfum notenda og samþykktri stefnu um áherslu á aðstoð í heimahúsum. Þá eru minni kröfur gerðar til menntunnar starfsmanna á Íslandi, starfsaldur og lífaldur þeirra er enn lægri en á Norðurlöndunum, og um þriðjungur íhugar að hætta starfi. Stöðugleiki og umfang þjónustu við aldraða á Íslandi eru því minni en á hinum Norðurlöndunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
verkefni, vinnuumhverfi og lidan starfsfólks i umönnun aldraðra á íslandi_Norræn samaburðarrannsókn_ritröð V.pdf | 960.2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |