Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10795
Vinnuviðhorf og vinnusiðferði fólks hefur verið mismunandi í gegnum aldirnar. Vinnusiðferði (work ethic) er talið endurspegla viðhorf og hugmyndir einstaklinga um gildi vinnunnar og mikilvægi vinnusemi. Rannsóknir hafa sýnt fylgni á milli vinnusiðferðis og stjórnrótar (locus of control) fólks en stjórnrót vísar til þess hvort fólk telur sig hafa stjórn á afleiðingum hegðunar sinnar eða hvort afleiðingarnar eru háðar þáttum sem ekki er unnt að stjórna. Í þessari rannsókn var spurningalisti lagður fyrir úrtak (N = 734) atvinnulausra ungmenna á aldrinum 18-29 ára þar sem vinnusiðferði, vinnustjórnrót, virkni í atvinnuleit og þátttaka í þeim virkniúrræðum sem Vinnumálastofnun býður atvinnulausum ungmennum upp á var metin. Niðurstöðurnar staðfestu þáttabyggingu kvarða sem metur vinnusiðferði og sýndu fram á fylgni á milli vinnusiðferðis og innri stjórnrótar annars vegar og innri stjórnrótar og vinnusemi hins vegar. Ekki kom fram fylgni á milli vinnusiðferðis eða stjórnrótar og virkni í atvinnuleit eða þátttöku í virkniúrræðum eins og spáð var. Menntun var eina breytan sem gaf vísbendingu um virkni einstaklinga í atvinnuleit og hversu líklegir þeir eru til þess að taka þátt í þeim virkniúrræðum sem bjóðast.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Erla Hlín Ritgerð.pdf | 430.03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |