is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1081

Titill: 
  • Norður-Sigling : nú og í framtíð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni fjallar um stöðu og þróun hvalaskoðunar á Íslandi og erlendis og stöðu Norður-Siglingar ehf. í íslenskri ferðaþjónustu. Einnig er sett fram viðskiptaáætlun fyrirtækisins.
    Í fyrsta hluta verkefnisins er fjallað um hvalaskoðun innan ferðaþjónustunnar og stöðu Húsavíkur í því sambandi. Rædd eru umhverfismál í tengslum við ferðaþjónustu og hvaða straumar og stefnur eru ráðandi hvað það snertir. Velt er upp hugmyndum um sjálfbæra hvalaskoðun og tekið dæmi um vel heppnaða uppbyggingu á hvalaskoðunarstað á Nýja-Sjálandi.
    Í öðrum hluta er viðskiptaáætlun Norður-Siglingar sett fram þar sem meðala annars eru sýnd yfirlit yfir ársreikninga fyrirtækisins frá árunum 1999 til 2001 og þróun þeirra lýst. Í því framhaldi er sett fram þriggja ára áætlun frá 2004 til 2006.
    Í þriðja og síðasta hluta verkefnisins eru umræður og tillögur og niðurstöður. Þar kemur fram að Ísland er komið á kortið sem vinsæll hvalaskoðunarstaður og hvalaskoðun hefur haft jákvæð áhrif, bæði efnahagsleg og félagsleg, á Húsavík og umhverfi sem er fjölsóttasti hvalaskoðunarstaður á Íslandi. Norður-Sigling er í sterkri stöðu sem stærsta hvalaskoðunarfyrirtækið á landinu og með auknum áherslum á umhverfisvæna- og menningartengda ferðaþjónustu á Norður-Sigling alla möguleika á að standast harðnandi samkeppni og eflast sem framsækið ferðaþjónustufyrirtæki.
    Lykilorð:
     Viðskiptaáætlun
     Hvalaskoðun
     Vistvæn ferðaþjónusta
     Sjálfbær ferðaþjónusta
     Afþreying

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1081


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
nordursigl.pdf717.28 kBLokaðurNorður-Sigling - heildPDF
nordursigl_u.pdf128.78 kBOpinnNorður-Sigling - útdrátturPDFSkoða/Opna
nordursigl_h.pdf131.78 kBOpinnNorður-Sigling - heimildaskráPDFSkoða/Opna
nordursigl_e.pdf153.67 kBOpinnNorður-Sigling - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna