is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10830

Titill: 
  • Aðgengileg ferðaþjónusta. Könnun á aðgengi og aðstöðu fyrir fatlað fólk á ferðamannastöðum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Helstu markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hversu aðgengileg ferðaþjónusta er fyrir fatlað fólk á Íslandi og var ákveðið að taka fyrir vinsæla ferðamannastaði innan Gullna hringsins. Skoðað var bæði aðgengi og aðstaða þessara staða ásamt því að athugað var hvaða uppbygging hefur orðið á þessum stöðum sem snertir aðgengi fyrir fatlað fólk. Framtíðarhorfur aðgengis innan staðanna og á Íslandi í heildina verða einnig skoðaðar. Við gagnaöflun var notast vettvangsrannsókn þar sem staðir voru metnir út frá gátlista en einnig var tölvupóstur sendur á tvo aðila með spurningum um viðfangsefnið, ásamt því var stuðst við fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á efninu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að aðgengi innan Gullna hringsins er ágætt en alls ekki fullnægjandi. Samkvæmt niðurstöðum er ástand staðanna hvergi eins gott og mætti ætla. Víða er aðgengið gott en þó er sums staðar áberandi hversu lélegir göngustígar, gangstéttir og rampar eru en ýmist eru þeir ójafnir með mishellum eða án handriða. Bílastæði voru oft léleg og sums staðar vantaði merkt bílastæði fyrir fatlaða. Háir kantar, þrep og langir stígar voru áberandi, vöntun var víða á hvíldarbekkjum, handriðum og upplýsingaskiltum sem sneru að flokkun fötlunar þ.e. sem gáfu til kynna hvernig aðgengi væri á stöðunum og hversu aðgengilegir þeir væru þeim. Framtíðarsýn í sambandi við uppbyggingu staðanna þegar kemur að aðgengi fyrir fatlaða er óljós en þó eru menn bjartsýnir á að aðgengi muni lagast til muna.
    Lykilorð: Aðgengileg ferðaþjónusta, fötlun, Gullni hringurinn, aðgengi

  • Útdráttur er á ensku

    The main purpose of this research is to find out how accessible or non-accessible travel service is in Iceland fot the handicapped, and it was decided to take a special look at the most popular tourist places within the Golden circle. The accessibility and conditions of these places were looked at and also what improvements had been made during the last years to make them more accessible. Future prospects for these places and for Iceland in general were also looked at. With collection of data were used field studies where trips were made to places that were evaluated with a special list and e-mail was used and sent to two individuals with questions about the research topic and in addition it was relied on other researches that were available. The conclusion of the research showed that access to places within the Golden circle are not satisfactory. According to the results, the condition of the places is quite good but in some areas it is nowhere as good as it should be, and it was striking how poor the walking paths, sidewalks and ramps are in, they are either uneven,unevenly paved and without handrails. Parking places were okay but often they were in poor condition and some places lacked parking signs for the handicapped. The future prospects for the improvement of better accessibility for the disabled are not clear,but it is hoped that it will greatly improve.
    Keywords: Accessible tourism, Handicapped, Golden circle, Access

Samþykkt: 
  • 14.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10830


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Svala Stefánsdóttir.pdf445.33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna