is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10838

Titill: 
  • Aldur og vöxtur sjóbleikjustofns Hvítár í Borgarfirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Bleikja Salvelinus alpinus telst til ferskvatnsfiska og er ein af þremur villtum laxfiskum sem finnast hér á landi. Göngur eru algengar hjá bleikju og bleikja sem gengur í sjó kallast sjóbleikja. Sjóbleikja í Hvítá í Borgarfirði hefur flókinn lífsferil. Hún gengur til sjávar í Borgarfjörð, hefur vetursetu neðarlega í Hvítá eða þverám hennar og hrygnir í lindám sem renna ofarlega í Hvítá. Seiði yfirgefa lindár strax eftir klak.
    Samkvæmt sýnaúrtaki þessarar rannsóknar samanstendur aldurssamsetning sjóbleikjustofnsins af bleikju eins til sex ára og eru flestar um þriggja ára aldur. Meðalaldur við kynþroska er 3,51 ár og virðist ekki hafa breyst frá árunum 1987-1999
    til 2007-2010. Hlutfall hænga á móti hrygnum var mun hærra á árunum 2007-2010 í sýnum sem voru að meirihluta tekin frá hrygningarstöðvum en hængar koma þangað fyrr og dvelja yfir lengra tímabil en hrygnur. Einnig var hlutfall geldbleikju á móti
    hrygningarbleikju hærra á árunum 1987-1999 í sýnum sem voru tekin í sjó í Borgarfirði og hlutfall hrygningarbleikju hærra á tímabilinu 2007-2010 í sýnum sem voru tekin í Hvítá. Niðurstöður sýndu að vöxtur stofnsins virtist ekki hafa breyst mikið frá árunum 1987-1999 til 2007-2010. Bakreiknuð lengd milli tímabilanna var svipuð hjá bleikjum frá eins til þriggja ára en eftir það var vöxtur bleikju frá 2007-2010 betri en á tímabilinu 1988 til 1989 tímabilinu og kom fram marktækur munur á vexti fjögurra ára bleikju. Sjóbleikjan gengur út í ósasvæði Hvítár í Borgarfirði og getur bleikjan valið úr svæðum með mismunandi seltustig. Þetta gerir það að verkum að hún getur gengið snemma á
    æviskeiði til sjávar og í þessari rannsókn kom í ljós að sjóbleikjan er eins til tveggja ára við fyrstu sjógöngu. Meðalaldur við fyrstu sjógöngu var 1,62 ár og kom ekki fram
    marktækur munur á fyrstu sjógöngu á milli tímabila. Samkvæmt niðurstöðum virðist ástand stofnsins ekki hafa breyst frá árunum 1987-1999 til 2007-2010 en ef litið er á veiðitölur sést að bleikju hefur fækkað verulega síðastliðin ár. Fækkun gæti stafað af aukinni samkeppni frá öðrum fisktegundum og hlýnandi veðurfari.

Samþykkt: 
  • 15.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10838


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LOKARITGERD- Iðunn.pdf4.03 MBOpinnPDFSkoða/Opna