is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10871

Titill: 
  • Að drepast eða drepast úr hlátri. Hlutverk húmors í bataferli fíkla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Með þessari rannsókn er leitað svara við því hvernig húmor er notaður innan þess hóps sem óvirkir fíklar mynda og hvaða tilgangi húmorinn þjónar fyrir hópinn.
    Byrjað er á því að skoða hvernig þjóðfræði skilgreinir hópa og af hverju rannsókn sem þessi á vel við innan þjóðfræðinnar. Í næsta kafla er fjallað um húmor og farið yfir helstu kenningar um húmor með tilvísunum í hóp óvirkra fíkla. Stærsti hluti ritgerðarinnar fer í að að flokka brandara og skemmtisögur sem söfnuðust í viðtölum við sex óvirka fíkla. Brandararnir eru svo greindir innan flokkanna eftir kenningum.
    Rannsóknin leiddi í ljós að forsenda hópsins sem óvirkir fíklar mynda er sameiginlegur bakgrunnur í neyslu og áhersla á að halda sig frá efnunum sem þeir voru háðir. Brandararnir styrkja enn frekar virkni hópsins og stuðla að jöfnuði þeirra á meðal, en þeir eru fyrst og fremst sagðir til að losa um spennu og skapa fjarlægð á milli fíklanna og fortíðar þeirra.

Samþykkt: 
  • 24.2.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10871


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Að drepast eða drepast úr hlátri.pdf451.64 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna