Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10934
Flestir þeir sem þekkja eitthvað til tónlistarlífs Íslendinga þekkja hugtakið Músíktilraunir þó þeir viti í raun lítið um fyrirbærið. Músíktilraunir voru stofnaðar árið 1982 í félagsmiðstöðinni Tónabæ að tilstuðlnan Ólafs Jónssonar þáverandi forstöðumanns. Margir þekktir tónlistarmenn hafa tekið sín fyrstu skref í keppninni. Í dag eru Músiktilraunir skilgreindar sem tónlistarhátíð fyrir 13-25 ára og eru skipulagðar af Hinu húsinu. Saga Músíktilrauna er hér rakin, tekin viðtöl við þátttakendur, skipuleggjendur sem og rýnt í það efni sem ritað hefur verið um fyrirbærið og hvert það sé að stefna. Reynt verður að svara spurningunni um hvaða áhrif Músíktilraunir hafa á tónlistarlíf Íslendinga sem og þýðingu þess fyrir þátttakendur. Í praktíska hlutanum er farið yfir helstu samstarfsaðila, dómnefnd, fyrrum sigurvegara og fleira. Í fræðilega hlutanum er tómstundafræðilegt gildi Músíktilrauna skoðað í fræðilegu samhengi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA - Þröstur Sigurðsson.pdf | 997.88 kB | Opinn | Skoða/Opna |