Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10935
Lokaverkefni þetta samanstendur af greinagerð, þar sem rökstutt er af hverju það að segja sögu sé góð kennsluaðferð í stærðfræði, sem og námsefni, sem inniheldur ævintýrasögu í tíu köflum og kennsluleiðbeiningar.
Sagan gefur tækifæri til að nota stærðfræði á fjölbreyttan hátt og námsefni þetta er samið með tilliti til þess að það henti nemendum með ólíkan skilning á þeirri stærðfræði sem unnið er með hverju sinni. Í námsefninu er megináhersla lögð á að nemendur fái tækifæri til að dýpka skilning sinn á stærðfræði og öðlist aukna leikni í greininni. Nemendur fá tækifæri til að leita lausna á sínum eigin forsendum og notfæra sér þá þekkingu og þann skilning sem þeir hafa. Þannig eiga þeir að hafa gagn af að takast á við öll viðfangsefni í námsefninu og læra eitthvað af glímunni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ævintýraleg stærðfræði.pdf | 418.35 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Ævintýrin í þúfunum.pdf | 251.39 kB | Opinn | Barnabók | Skoða/Opna |