is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10948

Titill: 
  • Félagshæfni barna og unglinga : mikilvægi, áhrif og efling
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Með rannsóknarritgerð þessari var reynt að skilgreina hvað felst í félagshæfni og hvers vegna hún sé mikilvæg. Enn fremur var farið yfir hvernig börn og unglingar þróa með sér félagshæfni og hvaða þátt umhverfið hefur á þróun hennar. Að lokum var fjallað um hverjir það eru sem geta markviss eflt félagshæfni barna og unglinga og hvernig. Skoðaðar voru rannsóknir sem gerðar hafa verið á efninu og kenningar sem settar hafa verið fram og tengjast því. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þroski einstaklingsins og siðferðiskennd hafi beina tengingu við félagshæfni hans. Að búa yfir góðri félagshæfni sem barn og unglingur getur haft mikil áhrif á heilbrigðan þroska, andlegan og líkamlegan. Umhverfið og uppeldi virðast spila stærsta hlutverkið í mótun félagshæfni barna og unglinga. Skipta foreldrar og skólar þar mestu máli. Til eru margar leiðir til þess að efla félagshæfni en þær helstu eru góð tengsl foreldra og barna, leiðandi uppeldishættir foreldra, lífsleikni í skólum, uppeldisnámskeið fyrir foreldra og félagshæfninámskeið fyrir börn.

Athugasemdir: 
  • Lokaverkefni til BA-prófs
Samþykkt: 
  • 16.3.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10948


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BAritg_KAPA_gudfinnayr.pdf132.23 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
BAritg_gudfinnayr.pdf480.82 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna