is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11043

Titill: 
  • Um afturvirkni laga og ógildingarreglu 36. gr. samningalaga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð hyggst ég annars vegar kanna grundvöll meginreglunnar um afturvirkni laga og undirstöður hinnar víðtæku ógildingarreglu sml. Hins vegar mun ég takast á hendur það verkefni að gera grein fyrir því hvernig dómstólar hafa í framkvæmd beitt þeim þætti 36. gr. sml. sem heimilar að ógilda samning með afturvirkum hætti og líta til þess hvernig þeim hefur farnast að gæta jafnvægis milli undirstöðuraka áðurgreindrar meginreglu um bann við afturvirkni laga og ógildingarreglunnar.
    Í kafla 2 verður gerð grein fyrir uppruna meginreglunnar um bann við afturvirkni laga, hvaða sjónarmið búa að baki reglunni og á hvaða réttarheimildarlega grunni hún hvílir í íslenskum rétti. Í kafla 3 er að finna umfjöllun um 36. gr. sml., þ. á m. aðdraganda að setningu reglunnar, gildissvið hennar og inntak og það hvað greinir hana frá öðrum ógildingarreglum sml. Þar að auki verður vikið sérstaklega að þeim þætti ógildingarreglunnar sem heimilar að litið sé til atvika sem síðar koma til. Í kafla 4 verður leitast við að greina þann þátt ógildingarreglunnar í 36. gr. sml. sem felur í sér afturvirkni laga og gera grein fyrir dómaframkvæmd þar um. Að síðustu verður umfjöllunarefni ritgerðarinnar dregið saman og helstu niðurstöður hennar kynntar í kafla 5.

Samþykkt: 
  • 14.4.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11043


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristín Sólnes_Prenteintak.pdf275.74 kBLokaður til...31.12.2132HeildartextiPDF