Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11060
Veiting stöðu innan stjórnsýslunnar er stjórnvaldsákvörðun og matskennd sem slík. Matskenndar stjórnvaldsákvarðanir nefnast þær ákvarðanir sem byggja á lagaheimildum sem ákvarða ekki fullkomlega þau skilyrði sem fyrir hendi þurfa að vera svo ákvörðun verði tekin og er stjórnvöldum gjarnan falið ákveðið mat sem ekki er að fullu lögákveðið. Við slíka ákvarðanatöku þarf oft að fylla í eyðurnar og túlka lög í samræmi við aðstæður og velja þau sjónarmið sem reisa skal viðkomandi ákvörðun á og hefur jafnræðisreglan í því samhengi afar mikið vægi. Við þessar aðstæður ber að huga að hinum ýmsu efnisreglum stjórnsýsluréttarins, bæði skráðum og óskráðum.
Við val á umsækjanda um opinbert starf þarf oft að velja úr stórum og breiðum hópi fólks og fá færri en vilja. Af þeim sökum er um takmörkuð gæði að ræða og nauðsynlegt að vandað sé til verks. Þarf meðal annars að huga að lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 (hér eftir nefnd starfsmannalög). Forgangsregla sú sem leidd hefur verið af lögum um jafnan rétt og jafna stöðu karla og kvenna nr. 10/2008 (hér eftir nefnd jafnréttislög) verður í forgrunni umfjöllunarinnar. Réttarframkvæmd verður könnuð með tilliti til hennar og þeirra takmarkana sem reglan setur vali stjórnvalds þegar ráða á í starf hjá hinum opinbera.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Anna Rut_ritgerð.pdf | 455.7 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |