is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11253

Titill: 
  • Samkeppnishæfni í ferðaþjónustu og hlutverk milliaðila: Þjónusta Nýsköpunarmiðstöðvar.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ferðaþjónustan á Íslandi hefur farið ört vaxandi síðustu árin en þrátt fyrir þennan mikla vöxt er ekki mikil arðsemi í greininni sem leiðir til þess að fyrirtæki innan greinarinnar eiga oft á tíðum erfitt með að halda flugi. Megintilgangur þessarar ritgerðar er að skoða hvaða þættir geta ýtt undir arðsemi greinarinnar og gert hana samkeppnishæfari með sérstaka áherslu á vetrarferðaþjónustuna. Einnig er skoðað hvaða hlutverki Nýsköpunarmiðstöð Íslands gegnir í því sambandi. Ferðaþjónustan á Íslandi er skoðuð út frá kenningum um samkeppnishæfni þjóða og þróun klasa meðal annars með hjálp greiningartækja eins og demanti Porters og klasakorts. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er skoðuð út frá kenningum um þjónustustustjórnun og þjónustuframleiðslukerfi. Einnig er fjallað um þá þjónustu sem hún veitir. Eitt ferðaþjónustufyrirtæki, ferðaskrifstofan Pink Iceland, er tekið fyrir sem dæmi til þess að sýna samspil ferðaþjónustufyrirtækis og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
    Notast var við bæði eigindlega og megindlega nálgun við öflun gagna og sýndu niðurstöður rannsóknarinnar hversu miklvægt það er að jafna árstíðasveiflur innan ferðaþjónustunnar. Með því að jafna árstíðasveifluna verður betri nýting á þeim fjárfestingum sem fyrir hendi eru og leiðir það til aukinnar arðsemi. Í því verkefni er klasi mögulega lykillinn að árangri, því með svæðisbundnu klasasamstarfi þar sem fyrirtækin, þjónustuaðilarnir og sveitarfélögin á svæðinu vinna að sameiginlegu markmiði, er hægt að styrkja samkeppnishæfni hvers svæðis fyrir sig og gera það að ákjósanlegum áfangastað fyrir ferðamenn allt árið í kring og þar með auka arðsemina í greininni.

Samþykkt: 
  • 2.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11253


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hrönn_Óskarsdóttir_BS.pdf1.24 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna