Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11386
Eftirfarandi greinargerð er meistaraverkefni höfundar í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Miðlunarleið sú, sem varð fyrir valinu, var gerð sögusýningar um ferjumanninn Jón Ósmann, sem ól manninn á árunum 1862-1914 við vesturósa Héraðsvatna í Skagafirði. Verkefnið hlaut vinnutitilinn „Ferjumaðurinn á Furðuströndum“. Er ferlinu að baki hugmyndavinnu sýningarinnar lýst, og leitað svara við spurningum, er varða menningartengda ferðaþjónustu. Einnig er Jóni Ósmanni og ferjustörfum gerð skil í sérkafla. Afurðir hugmyndavinnu fylgja svo með í fylgigögnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ferjumaðurinn á Furðuströndum.pdf | 2.86 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |