Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11514
Mansal er gróft brot á mannréttindum þar sem verslun með karla, konur og börn á sér stað. Talið er að á hverjum tíma séu um 1,2 milljónir barna í heiminum fórnarlömb mansals. Birtingarmyndir mansals eru fjölmargar og eru ólíkar eftir aldri og kyni barns. Hér er sjónum beint að umfangi og eðli mansals barna á Norðurlöndum. Skoðað er hvað íslensk stjórnvöld hafa gert í baráttunni gegn mansali auk þeirra réttinda sem börn, sem hafa sætt mansali, hafa hér á landi. Ritgerðin er byggð á fyrirliggjandi rituðum heimildum; skýrslum, rannsóknum, lögum, lagafrumvörpum og kennslubókum.
Niðurstöður sýna að mansal barna er staðreynd á Norðurlöndunum öllum utan Íslands. Börnin eru helst nýtt í vændi, smáglæpi og betl. Íslensk stjórnvöld hafa tekið þátt í baráttu alþjóðasamfélagsins gegn mansali en hafa þó ekki barist sérstaklega gegn mansali barna. Í aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn mansali er kveðið á um réttindi fórnarlamba mansals þar sem einnig er komið inn á málefni barna sem hafa sætt mansali. Þrátt fyrir það eru ekki fyrir hendi sérstakar verklagsreglur um hvað skuli gera ef upp kemur mansalsmál hér á landi þar sem barn á í hlut heldur skal notast við aðgerðaáætlun vegna vegalausra barna sem koma hingað til lands.
Lykilorð: Mansal, vændi, misnotkun, börn, Norðurlönd.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigrún Klörudóttir.pdf | 655.26 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Forsída_S_Y.pdf | 109.08 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit_S_Y.pdf | 42.53 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna |