Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11650
Samkvæmt formgerðarlegri hluthyggju eru hin eiginlegu viðfangsefni vísindakenninga ekki einstakir hlutir heldur tengsl þeirra meintu hluta við umhverfi sitt. Það er því skoðun sumra að vísindalegri hluthyggju sé borgið þótt nýjar kenningar leysi gamlar af hólmi, formgerðin varðveitist við endurskoðun þrátt fyrir að nýja kenningin virðist fjalla um önnur fyrirbæri. Hér verður greint frá helstu straumum innan formgerðlegrar hluthyggju. Í síðari hluta ritgerðarinnar verður vikið að kenningu eðlisfræðingsins Max Tegmark um að ekkert sé til í strangasta skilningi nema stærðfræðilegar formgerðir og því velt upp hvernig hún svarar til umræðunnar á undan. Því er að lokum haldið fram að erfitt sé að gagnrýna kenninguna nema á þeim forsendum að forsendur hennar séu rangar, sér í lagi að hægt sé að setja fram lýsingu óháð sjónarhorni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
[Vesteinn_Snaebjarnarson-2012]Formgerdarleg_hluthyggja_og_MUH.pdf | 494.59 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |