Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11662
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í þessari ritgerð er fjallað um forvarnargildi íþróttaiðkunar fyrir unglinga á Íslandi og hvaða áhrif íþróttir geta haft á unglinga. Íþróttir spila stórt hlutverk í menningu Íslendinga og koma inn á marga þætti í samfélaginu. Íþróttaiðkun getur haft líkamleg, andleg og félagsleg áhrif á unglinga og rannsóknir hafa sýnt að íþróttaiðkun getur meðal annars haft áhrif á sjálfsmynd unglinga, aukið andlega og líkamlega vellíðan og dregið úr áhættuhegðun unglinga. Áhættuhegðun getur birst á marga vegu en hér verður lögð áhersla á áfengis- tóbaks og vímuefnaneyslu og hvaða áhrif þeir áhættuhættir geta haft á árangur í íþróttum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forvarnargildi íþróttaiðkunar fyrir unglinga á Íslandi- RR.pdf | 423.11 kB | Lokaður til...05.05.2032 | Heildartexti |