Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11663
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í þessari ritgerð er fjallað um hinar ýmsu birtingarmyndir vændis, félagslegt umhverfi þess, áhrif og úrræði fyrir einstaklinga í vændi. Vændi er alvarlegt og útbreitt vandamál sem birtist allstaðar í heiminum og þar með talið á Íslandi. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á málaflokknum á Íslandi og eftir lagabreytingar 2009 héldu margir að vandamálið væri leyst. Þrátt fyrir lagabreytingarnar virðist vændi blómstra hér sem aldrei fyrr og oft á tíðum fyrir augum okkar allra. Nýlega hefur þó viss vitundarvakning orðið í kjölfar nýstofnaðra samtaka sem kalla sig Stóra Systir, en þau berjast gegn vændi og mansali hér á landi. Nýlega er búið að stofna athvarfið Kristínarhús sem er ætlað fyrir einstaklinga í vændi eða á leið úr vændi. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að einstaklingar í vændi eigi margt sameiginlegt varðandi félagslegan bakgrunn. Einstaklingar í vændi hafa margir hverjir verið þolendur einhverskonar ofbeldis í barnæsku, hafa misnotað vímuefni eða strokið að heiman.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaskil sóley.pdf | 743.9 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |