is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Kandídatsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11819

Titill: 
  • Lifrarbólga C og HIV á meðgöngu og í fæðingu. Fræðileg úttekt
Útdráttur: 
  • Síðan lifrarbólga C og HIV voru fyrst skilgreind hefur mikið verið rannsakað hvers vegna og hversu líklegt er að börn smitist af mæðrum sínum á meðgöngu og í fæðingu.
    Tilgangur þessa lokaverkefnis var að fara yfir þá fræðilegu þekkingu sem til er í tengslum við lifrarbólgu C og HIV á meðgöngu og í fæðingu. Aðaláhersla var lögð á barnið og hvað ljósmæður geta gert til þess að minnka líkur á smiti milli móður og barns á meðgöngu og í fæðingu.
    Markmið þessa lokaverkefnis var að taka saman upplýsingar um þá hættu sem því fylgir þegar konur sem eru smitaðar af lifrarbólgu C og/eða HIV ganga í gegnum meðgöngu og fæðingu og hvað ljósmæður geta gert til þess að minnka áhættuna bæði fyrir móður og barn.
    Niðurstöður þessarar fræðilegu úttektar voru að ljósmæður skipta miklu máli í umönnun þessara kvenna. Konum á barneignaraldri með HIV og lifrarbólgu C hefur fjölgað hér á landi og hluti þeirra kemur til með að taka þá ákvörðun að ganga með og fæða barn. Því er mikilvægt að ljósmæður kynni sér reglulega nýjungar í umönnun þessara kvenna bæði til þess að þær geti veitt þeim viðeigandi fræðslu og veitt sem besta umönnun á meðgöngu og í fæðingu.
    Lykilorð: Meðganga, lifrarbólga C, HIV, smit milli móður og barns.

  • Útdráttur er á ensku

    Ever since hepatitis C and HIV were first defined, mother to child transmission has been studied extensively and what causes the transmission.
    The purpose of this final thesis was to systematically review published studies about hepatitis C and HIV in pregnancy and birth. The main emphasis was on the child and what midwives can do to reduce the risk of mother to child transmission in pregnancy and birth.
    The objective was to compile information on the risk of pregnancy and birth for women infected with hepatitis C and/or HIV, and what can be done to lower the risk for both mother and child.
    The conclusions of this systematic review was that midwives are very important in the care for these women. The prevalence of women of childbearing age with HIV and hepatitis C has risen in Iceland, and some of these women will become pregnant and give birth. Therefore it is important for midwives to update their knowledge to be able to provide the best possible care during pregnancy and childbirth.
    Key words: Pregnancy, hepatitis C, HIV, mother-to-child transmission.

Samþykkt: 
  • 25.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11819


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lifrarbólga C og HIV á meðgöngu og í fæðingu.pdf545.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna