is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11909

Titill: 
  • Er orsakir samkynhneigðarfælni að finna innan trúarbragða? Um reynsluheim samkynhneigðra í trúarlegu ljósi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna hvort sú tilgáta geti staðist að finna megi rætur og orsakir fælni við samkynhneigð í trúarbrögðum. Leitast er við að greina viðhorf trúarbragðanna á grunni flokkunarkerfis James B. Nelsons, en lagt er upp með þá tilgátu m.a. að það sem búi að baki samkynhneigðarfælni sé dæmi um félagslegt taumhald byggt á viðmiðum og fráviki í félagsfræðilegum skilningi. Helsta ástæða efnisvalsins er eigin reynsla höfundar af neikvæðri umræðu t.d. í fjölmiðlum undanfarna tvo áratugi þar sem samkynhneigð hefur verið til umræðu í kristnu trúarlegu samhengi í anda bókstafshyggju.
    Könnuð er afstaða fjögurra af helstu eingyðistrúarbrögðum heims, gyðingdóms, kristni, íslam og bahá‘ía. Er það gert með því að kanna helgirit þeirra þ.e. þá texta sem helst hafa verið notaðir til að fordæma samkynhneigð og samkynhneigða. Leitast er við að gera trúarbrögðunum jafnt undir höfði varðandi greiningu á afstöðu þeirra, en þó er umfjöllun um kristni og nokkrar kirkjudeildir hennar mest að vöxtum þar sem höfundur fann hlutfallslega lítið af heimildum um þessi mál innan íslam og baháía-trúar. Stuðst er við ritaðar heimildir, heimildamyndir, samskiptavefi á Internetinu og könnun meðal nokkurra samkynhneigðra einstaklinga á Íslandi. Einnig voru tekin viðtöl við trúarleiðtoga tveggja kirkjudeilda hérlendis.
    Greind eru ólík viðhorf meðal nokkurra kirkjudeilda innan kristni, rómversk-kaþólsku kirkjunnar og rétttrúnaðarkirkjunnar almennt og hjá Krossinum og Þjóðkirkjunni að því er varðar íslenskar aðstæður.
    Fjallað er um reynsluheim samkynhneigðra í trúarlegu ljósi, bæði íslenskra og erlendra einstaklinga. Rætt er um afstöðu trúarbragðanna til samkynhneigðarfælni og dæmi um orsakir hennar og rætur ásamt leiðum til upprætingar á henni. Í því sambandi er m.a. fjallað um mikilvægi mismunandi túlkunaraðferða og túlkunar á helgiritunum, ríkjandi viðhorfa og kennisetninga innan trúarstofnana og meðal trúarleiðtoga þeirra. Erfitt er að svara rannsóknarspurningunni afdráttarlaust játandi eða neitandi, en niðurstöður greiningarinnar eru ræddar í lokin í því ljósi.

Samþykkt: 
  • 31.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11909


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
EinarErlendsson-BA 2012 forsida_a.pdf56.42 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Einar Erlendsson BA 2012-Lokaútgáfa_a.pdf1.18 MBLokaður til...12.12.2070HeildartextiPDF