is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11974

Titill: 
  • Hegðunarstjórnun í leikskólum: Samanburður á beinum áhorfsmælingum og sjálfsmati starfsmanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sjálfsmat hefur í gegnum tíðina verið ein algengasta aðferð til mælinga og gagnasöfnunar í sálfræði. Þrátt fyrir það hefur notkun þeirra verið mikið gagnrýnd fyrir skort á réttmæti þar sem þóknunaráhrif (reactivity) geta haft áhrif á niðurstöður þeirra. Sjálfsmatsmælingar geta því gefið ranga mynd af raunveruleikanum og fjöldi rannsókna hafa leitt í ljós að mikið ósamræmi virðist vera í sjálfsmati fólks á aðstæðum og mælinga með beinu áhorfi. Í þessari rannsókn voru mælingar á aðferðum hegðunarstjórnunar í leikskólum bornar saman við sjálfsmat starfsmanna á sömu aðferðum. 28 leikskólastarfsmenn sem ekki höfðu mikla þekkingu á hegðunarstjórnun voru valdir í úrtak ásamt börnum í þeirra umsjá. Fylgst var með aðdraganda, hegðun og afleiðingu með beinum áhorfsmælingum í samverustund og hádegismat. Að því loknu var sjálfsmatslisti lagður fyrir starfsfólk og gögnin borin saman. Niðurstöður leiddu í ljós að starfsmenn ofmátu skýra væntingu til hegðunar og ofmátu notkun viðeigandi afleiðinga við æskilegri og óæskilegri hegðun. Starfsmenn vanmátu einnig æskilega hegðun barnanna. Niðurstöður benda til þess að sjálfsmat sé ekki hentug aðferð til mælinga á hegðun í leikskólum og betra sé að styðjast við beinar áhorfsmælingar við mat á árangri hegðunarstjórnunarkerfis.

Samþykkt: 
  • 4.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11974


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga-BS-Skemman.pdf1.4 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna