is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12104

Titill: 
  • Viðhorf nemenda Háskólans á Akureyri til einstaklinga með geðklofa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Geðklofi er mjög misskilinn sjúkdómur og veit stór hluti almennings ekki hvað geðklofi er. Af þeim geðröskunum sem til eru, má segja að einstaklingar með geðklofa mæti neikvæðara viðmóti heldur en einstaklingar með aðrar geðraskanir. Fólk á það til að draga ályktanir um aðra þrátt fyrir að vera með aðrar upplýsingar um það. Viðhorf geta verið byggð á persónulegri reynslu en oftar en ekki eru þau lærð úr umhverfinu, vegna þekkingarleysis eða byggð á sögusögnum. Ekki er vitað til þess að rannsókn eins og þessi hafi verið framkvæmd áður hér á landi en fjölmargar rannsóknir á geðklofa hafa verið gerðar erlendis. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf háskólanema til einstaklinga með geðklofa. Þátttakendur rannsóknarinnar voru nemendur úr Háskólanum á Akureyri, þeir voru þeir 509 talsins og voru 18 ára og eldri. Þátttakendurnir komu af mismunandi sviðum innan Háskólans. Notast var við spurningalistann, Opinion about Mental Illness in Chinese Community (OMICC) sem þýddur var yfir á íslensku og lagður fyrir þátttakendur. Spurningalistinn skiptist niður í fimm þætti. Þættirnir fimm mældu mismunandi hliðar á viðhorfi til einstaklinga með geðklofa. Þættirnir fimm voru aðskilnaður, staðalímyndir, aðhaldssemi, góðsemi og svartsýni. Í heild sinni leiddu niðurstöðurnar í ljós jákvætt viðhorf nemenda af öllum sviðum Háskólans í garð einstaklinga með geðklofa. Nemendur á heilbrigðisvísindasviði voru með áberandi jákvæðasta viðhorfið í flestum þáttum. Þátttakendum var skipt í tvo hópa eftir aldri, yngri en 30 ára og 30 ára og eldri. Ekki mældist munur á viðhorfi á milli aldurshópanna tveggja en jákvæðara viðhorf mældist hjá nemendum sem þekktu einhvern með geðklofa.

  • Útdráttur er á ensku

    Schizophrenia is a very misunderstood illness and there are not many who know exactly what schizophrenia is. People with schizophrenia are among the most stigmatized of those with mental illnesses. People can be very judgmental and tend to draw conclusions about others without sufficient information about them. Attitude can be based on a personal experience but is most often learned from the environment, based on ignorance or rumors. Numerous studies about schizophrenia have been carried out around the world. By our knowledge research like this one has never been carried out before in Iceland. The purpose of this research was to explore the attitudes of students towards individuals with schizophrenia. The participants were 509 undergraduates at the University of Akureyri, they were 18 years or older. They were from different fields at the University. A questionnaire, Opinion about Mental Illness in Chinese Community (OMICC) was translated into Icelandic and used to measure the students attitude. The questionnaire was divided into five factors. The five factors measured different aspects of attitude towards individuals with schizophrenia. The five factors were separatism, stereotyping, restrictiveness, benevolence and pessimistic prediction. The result showed positive attitudes towards people with schizophrenia. Students in the field of health sciences showed the most positive attitude but the difference was insignificant between the other fields. The participants were divided into two age groups, younger than 30 years old and 30 years and older, but there was no difference in their attitudes depending on their age. Those who reported knowing someone with schizophrenia showed more positive attitude towards individuals with schizophrenia.

Samþykkt: 
  • 11.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12104


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Viðhorf nemenda við háskólann á Akureyri til Geðklofa - Tinna og Alma.pdf445.04 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna