Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12127
Megin áhersla var lögð á smíði einsetinna 1-halo-1-silacyclohexana; C5H10SiHX með X = F, Cl, Br og I. Fylgt var lýsingum Sunnu Ólafsdóttur Wallevik sem áður hafði smíðað þessi efni og liggja lýsingar efnasmíðanna fyrir í MS ritgerð hennar [1].
Þegar smíði efnanna er lokið verða þau send til Villigen í Swiss þar sem fengist hefur mælitími til að rannsaka niðurbrot þessara efna í rafeindahraðli Paul Scherrer Institute (PSI) í samvinnu við Dr. Andras Bödi, sérfræðing hjá PSI. Þessar rannsóknir gefa vonandi upplýsingar um bindiorku Si við halógenatómin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefniTHS.pdf | 1.29 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |