is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12205

Titill: 
  • Skipulagt áreiti markaðsaðila í matvöruverslunum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um það skipulagða áreiti sem þykir vænlegt til áhrifa á kauphegðun neytenda í matvöruverslunum í formi aukinnar sölu. Kannað verður hvort íslenskar matvöruverslanir nýta sér viðkomandi áreitisþætti og jafnframt hvort íslenskir neytendur veiti áreitinu athygli og verði fyrir áhrifum af því.
    Fræðilegra heimilda var aflað til að finna út hvaða áreiti fyrirfyndist innan veggja matvöruverslana ásamt því að notast var við eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir í þeirri vinnu sem sneri að íslenskum matvöruverslunum og neytendum. Höfundur tók viðtöl við verslunarstjóra Hagkaupa og Bónus á Akureyri til að fá innsýn inn í þeirra starf tengt neytendahegðun. Einnig var vefkönnun send með tölvupósti á alla nemendur Háskólans á Akureyri til að kanna áhrif áreitis á neytendur.
    Niðurstöður leiddu í ljós að það áreiti sem þekkt er fyrir að hafa áhrif á kauphegðun neytenda snúa að hönnun og uppsetningu verslananna, uppröðun í hillur, litum, afsláttum, lykt og tónlist. Íslenskar matvöruverslanir nota áreitisþættina að vissu marki, sumar verslanir þó meir en aðrar. Íslenskir neytendur virðast vera nokkuð meðvitaðir í innkaupum sínum, gefa áreitinu gaum og velta því talsvert fyrir sér. Niðurstöður benda til að ekki gætir mikilla áhrifa af völdum áreitisins á kauphegðun þeirra.
    Lykilorð: Neytendahegðun, matvöruverslanir, áreiti, íslenskar matvöruverslanir, íslenskir neytendur

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1.5.2132.
Samþykkt: 
  • 19.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12205


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð_ÍrisDaníelsdóttir.pdf4.42 MBLokaður til...01.05.2132Verkefnið er lokaðPDF

Athugsemd: Ritgerðin er lokuð ótímabundið að ósk verslunarstjóra Hagkaupa og Bónus vegna upplýsinga frá þeim sem bæði almenningur og samkeppnisaðilar mega ekki komast yfir. Ég valdi að aðgangur væri lokaður til 1. maí 2132, þar sem ég þurfti að tilgreina einhverja dagsetningu. En aðgangur á veissulega að vera lokað ur ótímabundið.