is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12254

Titill: 
  • Frammistaða og þátttaka kvenna í íþróttum. Tilkoma og áhrif staðalmynda
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að sýna fram á að staðalmyndaógn (stereotype threat) frekar en félagsleg auðveldun (social facilitation) hafi áhrif á þátttöku og frammistöðu kvenna í karlmannlegum íþróttum. Forathugun (N = 66) sýndi að sipp er hvorki talin kvenleg né karlmannleg æfing og bekkpressa er talin karlmannleg æfing. Því var spáð að vegna félagslegrar auðveldunar myndu þátttakendur standa sig betur í sippi í hóp frekar en ein og karlar standa sig betur í bekkpressu í hópi en einir. Reynt var að virkja staðalmyndaógn hjá konum þegar meta átti þær í bekkpressu innan um karla og því spáð að í kjölfarið myndu þær standa sig verr í bekkpressu innan um karla en innan um konur. Því var spáð að konur myndu mælast hærri á líkamskvíða og matskvíða en karlar. Þátttakendur voru 114 nemendur við Menntaskólann á Akureyri. Ekki kom fram munur á frammistöðu í sippi eða bekkpressu eftir því hvort þátttakendur voru metnir einir, í hópi af sama kyni eða í hópi beggja kynja. Konur kusu hins vegar sjaldnast að taka þátt í bekkpressu og sippi innan um karla auk þess skoruðu þær marktækt hærra á matskvíða og líkamskvíða en karlar.

Samþykkt: 
  • 22.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12254


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
haskolaprent.pdf485.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna